|
|||
![]() |
|||
2016-10-18 15:21:34 CEST 2016-10-18 15:21:34 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirEimskip styrkir stöðu sína í Hollandi með kaupum á flutningsmiðlunarfyrirtækinu ExtracoÁrsvelta fyrirtækisins er um 19 milljónir evra eða um 2,5 milljarðar króna Eimskip hefur styrkt stöðu sína í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun með kaupum á 90% hlut í flutningsmiðlunarfyrirtækinu Extraco Internationale Expeditie B.V. í Hollandi. Extraco var stofnað árið 1991 og er staðsett við stærstu höfn Evrópu, Rotterdam. Helstu þjónustuþættir þess eru þjónusta við innflytjendur á frysti- og kælivöru til Hollands, auk þess að sjá um innflutningspappíra, birgðahald, tollafgreiðslu og dreifingu á frystum og kældum afurðum í Evrópu. Ársvelta fyrirtækisins nemur um 19 milljónum evra eða um 2,5 milljörðum króna. Hjá Extraco starfa 19 manns og mun stór hluti stjórnendateymis fyrirtækisins halda áfram störfum og eiga 10% eignarhlut í félaginu. Unnið verður að því að ná fram samlegðaráhrifum með því að flytja fyrirtækið í starfsstöð Eimskips í Rotterdam í byrjun næsta árs, þar sem myndaður verður frystiflutningskjarni með öðrum einingum Eimskips, sem eru European Transport Services (E.T.S.), Eimskip Reefer Logistics og Jac. Meisner. Þetta er fyrsta fjárfesting af nokkrum sem Eimskip áformar til eflingar á kjarnastarfsemi sinni á komandi mánuðum. Kaupin munu styrkja og auka fjölbreytileika í flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins í Hollandi. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips „Við bjóðum Extraco velkomið í samstæðu Eimskips og vitum að samlegðaráhrif, aukin fjölbreytni og dýrmæt reynsla starfsmanna Extraco mun nýtast okkur vel í að byggja enn frekar upp flutningsmiðlunareiningu okkar í Hollandi.“ Dick de Weerdt, framkvæmdastjóri Extraco „Mér er ánægja að tilkynna að stjórnendateymi Extraco hefur ákveðið að ganga til liðs við samstæðu Eimskips. Það er trú mín að viðskiptavinir okkar muni njóta ávinnings af alþjóðlegu flutningsmiðlunar- og siglingakerfi Eimskips. Megináhersla mun áfram verða á markmið okkar um að veita framúrskarandi þjónustu.“ Um Eimskip Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.600 starfsmönnum. Um það bil helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun. |
|||
|