|
|||
![]() |
|||
2016-07-07 17:55:39 CEST 2016-07-07 17:55:39 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Leiðrétting: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt: 2016-07-07 17:34:57 CESTLeiðrétting: Fjárhæð tekinna tilboða Landsbankinn lauk í dag útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.180 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 640 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 640 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,41%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 15.500 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 16.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í óverðtryggða flokkinn LBANK CB 19. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 14. júlí 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [HUG#2027102] |
|||
|