|
|||
2010-11-03 16:19:03 CET 2010-11-03 16:20:00 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirBreyting á aðalmiðlarasamningumÞann 5. október s.l. gerðu Íbúðalánasjóður og aðalmiðlarar íbúðabréfa með sér samkomulag um tímabundnar breytingar á aðalmiðlarasamningi íbúðabréfa þar sem hámarksmunur kaup- og sölutilboða var aukinn. Umrætt samkomulag rennur út 4. nóvember n.k. Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti á fundi sínum í dag að heimila breytingar á aðalmiðlarasamningnum út samningstímann með þeim hætti að hámarksmunur kaup- og sölutilboða verði samkvæmt eftirfarandi töflu: Flokkur Hámarksmunur HFF150224 0,50% HFF150434 0,65% HFF150644 0,80% Stefnt er að undirritun samkomulags þar að lútandi við aðalmiðlara íbúðabréfa í lok dags 4. nóvember n.k. og mun breytingin taka gildi 5. nóvember n.k. nema tilkynnt verði um annað. |
|||
|