|
|||
![]() |
|||
2016-08-15 16:22:39 CEST 2016-08-15 16:22:39 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, mánudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 5.980 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.920 milljónir kr. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 580 milljónir á 6,36% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.560 milljónir á 6,43% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 780 milljónir á 6,80% flötum vöxtum. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í lok vikunnar. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|