|
|||
![]() |
|||
2016-10-05 17:35:58 CEST 2016-10-05 17:35:58 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 200 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,29%. Óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 400 m. kr á ávöxtunarkröfunni 5,75%. Öllum tilboðum var hafnað í verðtryggða flokkinn ARION CB 29 að þessu sinni. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.560 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hefa verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 2. nóvember næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 21.000 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 58.160 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|