2017-08-03 17:41:47 CEST

2017-08-03 17:41:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs


Landsbankinn  hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum
flokkum, LBANK 180110 og LBANK 180212 og nýjum flokki, LBANK 180810.

Heildartilboð í útboðinu voru 31 talsins og námu samtals 4.460 m. kr.

Átta  tilboð  að  fjárhæð  1.120 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 180110 og voru
vextir tilboða á bilinu 4,58%-4,80%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sextán  tilboð að  fjárhæð 2.140 m.  kr. bárust  í flokkinn LBANK 180212 og voru
vextir  tilboða á bilinu 4,58%-4,80%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.760 m. kr.
á 4,62% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6686.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.200 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180810 og voru vextir
tilboða á bilinu 4,78%-5,05%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. ágúst 2017.

Nánari  upplýsingar  um  víxlana  má  finna  á  vefsvæði  fjármögnunar  bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.


[]