2016-04-26 13:23:22 CEST

2016-04-26 13:23:22 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Englanti Islanti
HS Orka hf. - Fyrirtækjafréttir

HS Orka og Jarðboranir gera samning um djúpborun á Reykjanesi


HS Orka og Jarðboranir hafa undirritað  samning um borun allt að 5 km djúprar
háhitaholu á Reykjanesi. Til verksins munu jarðboranir nota stærsta bor
landsins, jarðborinn Þór. Stefnt er að því að holan verði dýpsta og heitasta
vinnsluhola jarðvarma á Íslandi með hita allt að 500°C  hitastigi.  Ráðgert er
að borun holunnar fari fram á síðari hluta þessa árs. 

HS Orka leggur til verksins holu 15 á Reykjanesi sem er  2,5 kílómetra djúp og
er ætlunin að dýpka holuna í allt að 5 kílómetra. Samningurinn er hluti af
öðrum áfanga íslenska djúpborunarverkefnisins (IDDP-2) en áður hefur verið
reynt við djúpborun á Kröflusvæðinu.  Tilgangur verkefnisins er að sýna fram á
að framleiða megi orku úr djúplægum jarðhitakerfum sem gæti aukið
orkuframleiðslu háhitasvæða umtalsvert og þar með dregið úr landrýmisþörf
orkuvinnslunnar.. Vinnslutækni verkefnisins ræðst af því hvernig jarðhitavökvi
finnst á 4-5 km dýpi. Ef efnasamsetningin reynist viðráðanleg og unnt verður að
vinna yfirhitaða orkuríka gufu beint upp úr djúpu borholunni er það fyrsti
valkostur sem mun þar með auka orkuvinnslu á Reykjanesi.  Slík orkuvinnsla mun
leiða til aukinnar nýtingar auðlindar og landsvæðis og draga úr
umhverfisáhrifum vinnslunnar.  Ef efnasamsetning vökvans reynist hins vegar of
erfið, verður vatni frá yfirborði dælt ofan í holuna til að efla orkuvinnslu úr
grynnri nærliggjandi holum. Við borun holunnar, prófanir, mælingar og vinnslu
verður prófuð og nýtt ný tækni og búnaður, í samstarfi við bæði innlenda og
erlenda aðila. 

HS Orka leiðir verkefnið í samstarfi við norska olíufélagið Statoil, auk
annarra fyrirtækja innan IDDP samstarfsins. Íslenska djúpborunarverkefnið
(IDDP) fékk nýlega styrk frá rannsóknaráætlun Evrópusambandsins uppá 1,3
milljarða króna til verkefnisins og er HS Orka leiðandi aðili í þessum hluta
verkefnisins. Auk HS Orku eru Ísor, Landsvirkjun, Georg, Statoil ásamt fleiri
Evrópskum fyrirtækjum þátttakendur í verkefninu. 

Íslenska djúpborunarverkefnið (IDDP) hefur verið starfrækt í um 15 ár. Að IDDP
standa íslensku orkufyrirtækin, HS Orka , Landsvirkjun og Orkuveita
Reykjavíkur, ásamt Orkustofnun og Statoil.