2014-10-16 20:19:43 CEST

2014-10-16 20:20:43 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. gefur út sértryggð skuldabréf


Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum óverðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.760 m.kr. í útboðinu. 

Skuldabréfaflokkurinn LBANK CB 19 sem skráður er á Nasdaq Iceland var stækkaður
um 780 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,95%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 960
m.kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 1.740 m.kr. 

Boðinn var til sölu nýr þriggja ára óverðtryggður flokkur, LBANK CB 17 og var
tilboðum tekið að fjárhæð 140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,30%. Fjárhæð
útgáfunnar verður 200 m.kr. en mismunurinn verður nýttur vegna viðskiptavaktar.
Stefnt er að töku LBANK CB 17 til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. október
2014. 

Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um
skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. 



Nánari upplýsingar veita:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011