2014-11-11 16:31:00 CET

2014-11-11 16:31:02 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 15 0216 og RIKV 15 0515


Fimmtudaginn 13. nóvember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 0216 og RIKV 15 0515 sem eru með gjalddaga 16.
febrúar og 15. maí 2015. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

   Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. nóvember 2014.

Sótt verður um að RIKV 15 0515 verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi
þriðjudaginn 18. nóvember 2014. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.