|
|||
![]() |
|||
2016-09-12 12:45:06 CEST 2016-09-12 12:45:06 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 170920, ARION 170320 og ARION 170220Arion banki verður með víxlaútboð miðvikudaginn 14. september 2016. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 20. september 2017, 20. mars 2017 og 20. febrúar 2017. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 12:00 þann 14. september en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. september 2016. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|