2013-03-08 16:47:31 CET

2013-03-08 16:48:33 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Fjármálaráðherra hefur falið Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera
samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. 

Aðilar að NASDAQ OMX á Íslandi, sem hafa starfsleyfi í samræmi við 1-3. tl. 1.
mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og eigið fé að lágmarki 5
milljónum evra (EUR), sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og hafa nauðsynlegan búnað
til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa, geta óskað eftir því að gerast
aðilar að samningunum. 

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar
sem markflokkar ríkisverðbréfa eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir
aðgang að verðbréfalánum ríkisverðbréfa í samræmi við reglur og skilmála. 

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa í NASDAQ OMX á
Íslandi. Aðalmiðlurum er skylt að setja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki
100 m.kr. í hvern markflokk ríkisbréfa með hliðsjón af hámarksmun sem
tilgreindur er í samningunum. 

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í
tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.
Kauphallaraðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir
að mæta til undirritunar samninga klukkan 16:00 föstudaginn 15. mars 2013 í
húsakynnum Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1.