2018-01-15 18:08:24 CET

2018-01-15 18:09:25 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

FRÉTTATILKYNNING FRÁ EIMSKIP

Breyting á viðskiptavakt

Eimskipafélag Íslands hf. og Kvika banki hf. hafa samið um að leysa Kviku banka hf. undan samningi um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru á Nasdaq Iceland og tekur uppsögnin gildi nú þegar.

Áfram eru í gildi samningar félagsins um viðskiptavakt við Íslandsbanka hf. og Landsbankann hf. Þeir samningar eru ótímabundnir og uppsegjanlegir með eins mánaðar fyrirvara.

Helstu skilmálar samninganna eru eftirfarandi:

Fjárhæð kaup- og sölutilboða hvors viðskiptavaka um sig skal vera að lágmarki 50.000 hlutir á gengi sem hvor viðskiptavaki ákveður. Frávik frá síðasta skráða viðskiptagengi skal ekki vera meira en 3%. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða er 1,5%. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er og eigi síðar en 10 mínútum eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem hvor viðskiptavaki er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi er 400.000 hlutir.