|
|||
![]() |
|||
2017-02-09 17:24:06 CET 2017-02-09 17:24:06 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - ÁrsreikningurLandsbankinn hf. : Ársuppgjör 2016Landsbankinn hagnaðist um 16,6 milljarða króna árið 2016 * Hagnaður Landsbankans á árinu 2016 nam 16,6 milljörðum króna, eftir skatta. * Markaðshlutdeild Landsbankans á einstaklingsmarkaði var 37,1%, skv. mælingum Gallup, og hefur aldrei mælst hærri. * Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 6,6% á árinu 2016, samanborið við 14,8% árið 2015. * Kostnaðarhlutfall Landsbankans hækkaði á milli ára en það var 48,4% á árinu. * Virðisbreyting útlána var neikvæð um 318 milljónir króna en árið 2015 voru virðisbreytingar útlána jákvæðar um 18,2 milljarða króna. Landsbankinn gjaldfærði samtals 5,4 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi vegna fjögurra hæstaréttardóma. * Eigið fé Landsbankans nam 251,2 milljörðum króna í árslok 2016 og eiginfjárhlutfallið var 30,2% af áhættugrunni. * Lagt verður til við aðalfund að greiddur verði um 13 milljarða króna arður til hluthafa vegna ársins 2016. Til viðbótar hyggst bankaráð leggja til sérstaka arðgreiðslu á aðalfundi 22. mars nk. * Ársskýrsla Landsbankans 2016 og áhættuskýrsla fyrir árið 2016 koma nú út samhliða birtingu ársuppgjörs. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef bankans. Hagnaður Landsbankans hf. á árinu 2016 nam 16,6 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 36,5 milljarða króna á árinu 2015. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 6,6% á árinu 2016, samanborið við 14,8% árið 2015. Hreinar vaxtatekjur voru 34,7 milljarðar króna og hreinar þjónustutekjur námu 7,8 milljörðum króna. Aðrar rekstrartekjur námu 6,1 milljarði króna. Virðisbreytingar útlána voru neikvæðar um 318 milljónir króna. Rekstrarkostnaður var 23,5 milljarðar króna. Útlán jukust um 5% milli ára á meðan efnahagsreikningurinn minnkaði innan við 1%. Nú ber hlutfallslega stærri hluti eigna Landsbankans vexti, sem skilar sér í auknum vaxtatekjum, en hreinar vaxtatekjur jukust um rúma 2,3 milljarða króna milli ára. Hreinar þjónustutekjur Landsbankans hækkuðu um 14% á milli ára. Kemur það einkum til vegna aukinna umsvifa í markaðsviðskiptum og eignastýringu auk breytinga á kortamarkaði, sem skila auknum þjónustutekjum, en á sama tíma eykst kostnaður bankans vegna fjármögnunar kortaviðskipta. Þá dragast aðrar rekstrartekjur saman um tæpa 9 milljarða króna sem einkum skýrist af þróun á mörkuðum á árinu. Virðisrýrnun útlána nam 318 milljónum króna. Þetta er mikil breyting frá árinu 2015 en þá voru virðisbreytingar útlána jákvæðar um 18,2 milljarða króna. Áhrif endurútreiknings gengistryggðra lána hefur haft mikil áhrif á uppgjör bankans en á árinu 2015 nam tekjufærsla 13,8 milljörðum króna vegna fordæmisgildis dóma sem féllu í Hæstarétti í málum nr. 34/2015 og 35/2015 og dómum Héraðsdóms Reykjavíkur í nóvember 2015 og janúar 2016. Meginskýringin á virðisrýrnun útlána á árinu 2016 er sú að í desember 2016 og í janúar 2017 dæmdi Hæstiréttur bankanum í óhag í fjórum málum þar sem reyndi á viðbótarkröfu bankans vegna endurútreiknings gengistryggðra lána í samræmi við viðmiðunarvexti Seðlabanka Íslands í stað samningsvaxta samkvæmt fullnaðarkvittunum. Í þessum málum taldi Hæstiréttur að áhrif viðbótarkröfunnar á viðkomandi fyrirtæki væru svo veruleg að bankinn yrði sjálfur að bera þann vaxtamun sem deilt var um. Þessir dómar kunna að hafa fordæmisgildi í málum þar sem deilt er um gengistryggð lán til fyrirtækja, séu aðstæður sambærilegar, en þörf er frekari dóma sem skýra nánar fordæmisgildið. Því gæti matið á fjárhagslegum áhrifum dómanna breyst í samræmi við niðurstöður nýrra dóma. Þessir dómar höfðu í för með sér gjaldfærslu í rekstrarreikning samstæðu Landsbankans í lok fjórða ársfjórðungs 2016, að fjárhæð 5.435 milljónir. Laun og annar rekstrarkostnaður lækkaði um 1,0% frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 2% en annar rekstrarkostnaður lækkaði um 5%. Hagnaður fyrir skatta á árinu 2016 var 25,2 milljarðar króna samanborið við 48,9 milljarða króna 2015. Reiknaðir skattar, þar með talið sérstakur fjársýsluskattur á laun, eru 9,2 milljarðar króna í uppgjöri fyrir 2016 samanborið við 13,1 milljarð króna árið 2015. Heildareignir Landsbankans lækkuðu um 7,5 milljarða á milli ára og í árslok 2016 námu eignir bankans alls 1.111 milljörðum króna. Útlán jukust um 42 milljarða króna en aukningin er að stærstum hluta vegna aukinna íbúðalána til einstaklinga, ásamt auknum lánveitingum til fyrirtækja. Vanskilahlutfall heldur áfram að lækka en það var 1,5% í lok árs 2016, samanborið við 1,8% í lok árs 2015. Í árslok 2016 voru innlán frá viðskiptavinum 590 milljarðar króna, samanborið við 559 milljarða í árslok 2015. Eigið fé Landsbankans í árslok 2016 var 251,2 milljarðar króna samanborið við 264,5 milljarða króna í árslok 2015. Á árinu 2016 greiddi Landsbankinn 28,5 milljarða króna í arð til hluthafa. Eiginfjárhlutfall Landsbankans í árslok 2016 var 30,2% og lækkaði um 0,2 prósentustig frá fyrra ári. Fjármálaeftirlitið gerir 22,1% heildarkröfu um eiginfjárgrunn Landsbankans. Lagt verður til við aðalfund þann 22. mars 2017 að greiddur verði arður til hluthafa vegna ársins 2016 sem nemur 0,55 krónum á hlut, eða samtals um 13 milljörðum króna. Arðgreiðslan nemur um 78% af hagnaði ársins 2016. Til viðbótar hyggst bankaráð leggja fram tillögu um sérstaka arðgreiðslu á aðalfundi, en fjárhæð hennar verður tilgreind í tillögum fyrir aðalfund. Hreiðar Bjarnason, starfandi bankastjóri Landsbankans, segir: ,,Landsbankinn er sem fyrr stærsta fjármálafyrirtæki landsins og fjárhagsstaða bankans er afar traust. Grunnrekstur Landsbankans gekk vel á árinu, hreinar vaxta- og þóknunartekjur jukust töluvert frá fyrra ári, en á sama tíma hefur rekstrarkostnaður bankans lækkað. Markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði hefur aldrei mælst hærri og staða bankans á fyrirtækjamarkaði og á fjármálamörkuðum er áfram sterk. Þá sýna mælingar að ánægja viðskiptavina bankans jókst umtalsvert á árinu, sem er okkur afar mikilvægt, enda leggur bankinn mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum um allt land fyrirmyndarþjónustu á samkeppnishæfum kjörum. Annað árið í röð hækkaði lánshæfismat Landsbankans hjá Standard & Poor's og er nú BBB og er einkunn Landsbankans áfram með jákvæðar horfur eftir hækkunina. Þetta er ánægjuleg viðurkenning á því frábæra starfi sem unnið hefur verið í bankanum mörg undanfarin ár. Landsbankinn hefur lengi lagt áherslu á að rekstur bankans verði arðsamur þegar stórum og óvenjulegum liðum sleppir. Sú stefna hefur skilað árangri og bankinn mun halda áfram á sömu braut." Fjárhagsdagatal Landsbankans 22. mars 2017 - Aðalfundur 4. maí 2017 - Uppgjör 1F 2017 27. júlí 2017 - Uppgjör 1H 2017 26. október 2017 - Uppgjör 3F 2017 8. febrúar 2018 - Ársuppgjör 2017 Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|