|
|||
![]() |
|||
2017-10-26 17:51:40 CEST 2017-10-26 17:51:40 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Landsbankinn hf. : Landsbankinn hagnast um 16,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017Afkoma Landsbankans var jákvæð um 16,8 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 samanborið við 16,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2016. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 9,4% á ársgrundvelli samanborið við 8,5% á sama tímabili 2016. Hreinar vaxtatekjur voru 27,1 milljarður króna og hækkuðu um 3,3% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 6,6 milljörðum króna og hækkuðu um 11,5% frá sama tímabili árið áður. Jákvæðar virðisbreytingar námu 2,1 milljarði króna á tímabilinu sem er 53% lægri fjárhæð en á sama tímabili í fyrra. Aðrar rekstrartekjur námu 5,9 milljörðum króna samanborið við 5,2 milljarða króna á sama tímabili árið áður, sem er 15% hækkun. Skýrist hækkunin aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum óskráðra hlutabréfa. Vanskilahlutfall hélt áfram að lækka og var 1,0% á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 1,8% á sama tímabili 2016. Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,5% á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 en var 2,3% á sama tímabili árið áður. Rekstrarkostnaður bankans nam 17,7 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2017, samanborið við 17,6 milljarða króna á sama tímabili árið 2016, sem er tæplega 1% hækkun. Þar af var launakostnaður 10,3 milljarðar króna samanborið við 10,4 milljarða króna á sama tímabili árið 2016, sem er lækkun um 1%. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 2,9% frá sama tímabili árið 2016 og var 7,4 milljarðar króna. Skýrist hækkunin aðallega af hærri framlögum til Fjármálaeftirlitsins og Umboðsmanns skuldara. Kostnaðarhlutfall fyrstu níu mánaða ársins var 44,7% sem er lækkun um 3 prósentustig frá sama tímabili árið áður. Lækkunin skýrist einkum af jákvæðri þróun á mörkuðum. Útlán jukust um 6,2% frá áramótum, eða rúma 52 milljarða króna. Útlánaaukning ársins er bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Vanskilahlutfall heldur áfram að lækka og er nú 1%. Innlán hjá Landsbankanum jukust um 8,3% á milli tímabila. Þar af jukust innlán einstaklinga um 28 milljarða króna og er það til marks um bætta stöðu heimilanna. Eigið fé Landsbankans var 243,1 milljarður króna 30. september sl. og eiginfjárhlutfallið var 26,8%. Landsbankinn hefur á þessu ári greitt 24,8 milljarða króna í arð. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: ,,Rekstur Landsbankans gengur vel, eins og uppgjör bankans ber með sér. Aukin markaðshlutdeild á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, hagstæðar aðstæður í efnahagslífinu og aukin umsvif í þjóðfélaginu eiga stærstan þátt í að afkoma bankans var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Áframhaldandi aðhald í rekstri veldur því að rekstrarkostnaður er nánast sá sami á þriðja ársfjórðungi og á sama tímabili í fyrra. Hlutur Landsbankans í fasteignalánum til ungs fólks heldur áfram að aukast og það er ánægjulegt að bankinn geti stutt við fólk sem er að taka fyrstu skrefin á fasteignamarkaði. Ástæða þess að ungt fólk leitar í auknum mæli til bankans er ekki síst sú að bankinn býður upp á allt að 85% lán sem kemur þeim vel sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Bankanum er erfitt um vik að keppa við þau kjör sem lífeyrissjóðir bjóða á húsnæðislánum, enda þurfa sjóðirnir ekki að greiða bankaskatt sem eingöngu er lagður á lánveitingar stóru viðskiptabankanna. Bankaskatturinn skekkir þannig samkeppni og kemur niður á kjörum til viðskiptavina. Í gær var greint frá því að alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hækkaði lánshæfiseinkunn Landsbankans upp í BBB+/A-2 sem er ánægjuleg staðfesting á auknu trausti til bankans. Bankinn hefur notið sífellt batnandi kjara á erlendum fjármálamörkuðum og betri lánshæfiseinkunn mun að öðru óbreyttu gera bankanum kleift að sækja sér erlenda fjármögnun á enn betri kjörum. Hærra lánshæfismat er til marks um sterka fjárhagsstöðu bankans. Landsbankinn greiddi 11,8 milljarða króna í arð á þriðja ársfjórðungi og alls nema arðgreiðslur bankans á þessu ári 24,8 milljörðum króna. Frá árinu 2013 hefur bankinn alls greitt um 107 milljarða króna í arð. Bankinn mun áfram vinna að því að bæta fjármagnsskipan sína með því að greiða upp óhagstæð lán og minnka eigið fé með því að greiða út arð, þó þannig að tryggt verði að bankinn viðhaldi sterkri fjárhagsstöðu. Eigið fé bankans eftir síðustu arðgreiðslu er sterkt og nemur 243,1 milljarði króna og eiginfjárhlutfallið er 26,8%, sem er vel umfram opinbera eiginfjárkröfu." Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|