|
|||
![]() |
|||
2013-07-01 10:42:05 CEST 2013-07-01 10:43:19 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirUNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á EFTIRMARKAÐIÁ föstudaginn, 28. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 1. júlí 2013 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Íslandsbanki hf., Arion banki hf., MP banki hf.og Landsbankinn hf . -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs. -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir. -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 750 milljónir króna að markaðsverði. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi. Flokkur Nafnverð --------------------- HFF150224 80.000.000 --------------------- HFF150434 70.000.000 --------------------- HFF150644 65.000.000 --------------------- -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. -- HFF skuldabréfaflokkar Íbúðalánasjóðs eru á athugunarlista hjá NASDAQ OMX. Vegna markaðsaðstæðna hefur Íbúðalánasjóður heimilað aðalmiðlurum sínum að vinna með aukið verðbil á milli sölu- og kauptilboða sbr. tilkynningu þar um dagsett 27.11.2012. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. -- Samningurinn gildir frá 1. júlí 2013 til 30. júní 2014. Þóknun til allra aðalmiðlara íbúðabréfa á samningstímanum verður 100 milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,12% þóknun í teknum tilboðum íbúðabréfa. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur samningsaðila. |
|||
|