2013-07-05 17:35:00 CEST

2013-07-05 17:36:00 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur júní 2013


Í júní flutti félagið um 269 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10%
fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og
sætanýting var 82,2% samanborið við 82,6% á sama tíma í fyrra.  Farþegum
fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15% og voru þeir 51% af
heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í júní. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 28 þúsund í júní og fækkaði
um 15% á milli ára.  Framboð félagsins í júní var dregið saman um 20%
samanborið við júní 2012. Sætanýting nam 71,1% og jókst um 2,0 prósentustig á
milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára. 
Fraktflutningar jukust um 10% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum
félagsins var 73,6% samanborið við 75,3% í júní í fyrra. 



MILLILANDAFLUG                    JÚN 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                   268.617          10%    967.172          14%
Sætanýting                         82,2%  -0,5 %-stig      77,5%  -2,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000)    963.771          12%  3.614.305          20%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG   JÚN 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                    28.216         -15%    149.585         -10%
Sætanýting                         71,1%   2,0 %-stig      70,6%   2,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000)        14.932         -20%     69.889         -14%
LEIGUFLUG                         JÚN 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                    100,0%   0,0 %-stig      89,0%  -1,7 %-stig
Seldir blokktímar                  2.157         -22%     14.166         -11%
FRAKTFLUTNINGAR                   JÚN 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)      19.897          10%     91.122           9%
Seldir tonnkm. (FTK´000)           7.860          10%     46.926           4%
HÓTEL                             JÚN 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-----------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur             35.514           2%    147.578          14%
Seldar gistinætur                 26.150           0%     99.664          13%
Herbergjanýting                    73,6%  -1,7 %-stig      67,5%  -0,2 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010