|
|||
![]() |
|||
2013-07-05 18:05:44 CEST 2013-07-05 18:06:44 CEST REGLERAD INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur skuldabréfaútboðiArion banki hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa, Arion CBI 19. Í heild bárust tilboð upp á 3.720 milljónir kr. og tekið var tilboðum fyrir 3.000 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,84%. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á NASDAQ OMX Íslandi. Um er að ræða vaxtagreiðsluskuldabréf sem bera 2,50% verðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2019. Nánari upplýsingar veitir: Bára Mjöll Þórðardóttir, samskiptasviði Arion banka bara.thordardottir@arionbanki.is; s: 856 7159. |
|||
|