|
|||
2013-07-08 13:06:58 CEST 2013-07-08 13:07:59 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirReitun hefur uppfært lánshæfismat á Arion banka hf.Reitun hefur uppfært lánshæfismat á Arion banka hf. Mat Reitunar á lánshæfi Arion banka er B+ með jákvæðum horfum. Lánshæfismatið hefur því breyst úr stöðugum horfum í jákvæðar. í greiningu Reitunar kemur fram að bankinn horfi í vaxandi mæli til framtíðar. Fjárhagslegur styrkleiki bankans er mikill og kjarnastarfsemi og samkeppnisstaða sterk. Gæði lánasafnsins fer batnandi og lok fjárhagslegar endurskipulagningar nokkurra stórra aðila sem unnið hefur verið að mun styrkja kennitölur. Gangi það eftir í samræmi við áætlun mun einkunn bankans hækka. Niðurstaða lánshæfismats er óbreytt einkunn en horfur breytast í jákvæðar. Sérstakar aðstæður á Íslandi, s.s. gjaldeyrishöft, uppgjör við kröfuhafa og pólitísk óvissa, hafa verulega neikvæð áhrif á alþjóðlegt lánshæfismat Íslands og þar með bankans og mun það torvelda erlenda lánsfjármögnun bankans. Bankinn er hins vegar vel fjármagnaður í erlendri mynt og þarf ekki á endurfjármögnun að halda á næstunni. Nánari upplýsingar veitir: Bára Mjöll Þórðardóttir, samskiptasviði Arion banka bara.thordardottir@arionbanki.is; s: 856 7159 |
|||
|