|
|||
2013-07-08 13:12:36 CEST 2013-07-08 13:13:36 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirReitun hefur uppfært lánshæfismat á sértryggðum skuldabréfum Arion banka hf.Lánshæfismat Reitunar á sértryggðum skuldabréfum, útgefnum af Arion banka hf., er A, sem er sama mat og fyrirtækið gefur íslenska ríkinu. Matið er óbreytt frá fyrra ári. Lánshæfismat skuldabréfanna byggir bæði á lánshæfismati Arion banka og mati á áhættu tryggingasafnsins. Að mati Reitunar hefur Arion banki sterka lausafjár- og eiginfjárstöðu og því góðan viðnámsþrótt gagnvart áföllum. Auk þess eru tryggingar sértryggðu bréfanna góðar og væntar endurheimtur bréfanna því miklar. Horfur eru stöðugar. Nánari upplýsingar veitir: Bára Mjöll Þórðardóttir, samskiptasviði Arion banka bara.thordardottir@arionbanki.is; s: 856 7159. |
|||
|