|
|||
![]() |
|||
2013-07-09 17:31:00 CEST 2013-07-09 17:31:01 CEST REGLERAD INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður viðbótarútgáfuÚtboð RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124 viðbótarútgáfa Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 5. júlí sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér ekki kaupréttinn í RIKB 15 0408 né í RIKB 31 0124. Selt magn í flokki RIKB 15 0408 nemur því 3.200 m.kr. að nafnvirði og 6.420 m.kr. í RIKB 31 0124. Heildarstærð RIKB 15 0408 eftir útboð er nú 21.595.000.000 kr. að nafnvirði og 56.346.400.000 kr. á RIKB 31 0124. Uppgjör er 10. júlí 2013. |
|||
|