|
|||
2016-04-19 21:36:47 CEST 2016-04-19 21:36:47 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Niðurstöður hluthafafundarIslandsbanki hf. : Aðalfundur Íslandsbanka+------------------------------------------------------------------------------+ |Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag, þriðjudaginn 19. apríl. | |Friðrik Sophusson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Birna | |Einarsdóttir, bankastjóri, fór yfir uppgjör bankans og helstu þætti í | |starfsemi hans á árinu 2015. | |Helstu niðurstöður aðalfundar: | |Ný stjórn var kjörin fyrir bankann: | | | |Anna Þórðardóttir, Auður Finnbogadóttir, Árni Stefánsson, Hallgrímur | |Snorrason, Heiðrún Jónsdóttir, Helga Valfells og Friðrik Sophusson, sem einnig| |var kjörinn formaður stjórnar. | | | |Herdís Gunnarsdóttir og Pálmi Kristinsson voru kjörin í varastjórn bankans. | |Marianne Økland, Eva Cederbalk, Neil Graeme Brown, Gunnar Fjalar Helgason og | |Árni Tómasson hætta í aðalstjórn bankans og Jón Eiríksson og Margrét | |Kristmannsdóttir hætta í varastjórn bankans. | |Þá samþykkti fundurinn ársreikning bankans og að allt að 50% nettóhagnaðar | |bankans árið 2015 verði greiddur sem arður til hluthafa en að öðru leyti | |bætist hagnaðurinn við eigið fé bankans. Stjórn bankans var einnig fengin | |heimild til að kalla til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga| |um greiðslu arðs af hagnaði fyrri rekstrarára kann að vera lögð fram. | |Þá var samþykkt starfskjarastefna fyrir bankann og ákveðin þóknun til | |stjórnarmanna. Jafnframt fól fundurinn stjórn bankans að setja í starfsreglur | |sínar ákvæði um samkeppnislegt sjálfstæði bankans gagnvart öðrum | |viðskiptabönkum í eigu ríkisins. | |Á fundinum var samþykkt tillaga um breytingu á samþykktum bankans á þá leið að| |heimilisfang bankans og varnarþing verði i Kópavogi. | |Þá var á fundinum einnig samþykkt að Ríkisendurskoðun verði endurskoðunarfélag| |bankans til næstu fimm ára. | |Hægt er að nálgast Ársskýrslu á www.islandsbanki.is/arsskyrsla. | |Önnur gögn frá aðalfundi má finna á www.islandsbanki.is/adalfundur og á vef | |fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir | | | | | |Nánari upplýsingar veita: | | * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. | | * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma | | 844 4005. | +------------------------------------------------------------------------------+ [HUG#2004949] |
|||
|