2014-08-13 13:45:00 CEST

2014-08-13 13:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 1117 og RIKV 15 0216


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 1117 og RIKV 15 0216 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 1117:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.380 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.160 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,941 (flatir
vextir 4,10%). 


RIKV 15 0216:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.060 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.730 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,887 (flatir
vextir 4,20%).