|
|||
2008-12-19 17:40:47 CET 2008-12-19 17:41:47 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumFramkvæmdastjóri SmartLynxEugene O´Reilly hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra SmartLynx, dótturfélags Icelandair Group í Lettlandi. Hann tekur við starfinu af Garðari Forberg, sem fer í leyfi að eigin ósk og mun að því loknu hverfa aftur til starfa fyrir Icelandair Group. SmartLynx er leiguflugfélag með starfsemi víða um heim, en höfuðstöðvar í Riga í Lettlandi. Eugene O´Reilly hefur starfað undanfarin tvö ár sem aðstoðarframkvæmdastjóri Icelease, sem annast alþjóðleg flugvélaviðskipti fyrir samstæðuna. Hann starfaði frá 2001 hjá Sojitz Aircraft Corporation, japönsku flugvélaleigufyrirtæki, og á árinum 1992-2000 sem aðstoðarforstjóri tyrkneska flugfélagsins Pegasus Airlines. Eugene er frá Írlandi, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi að mennt. |
|||
|