2017-05-23 19:40:32 CEST

2017-05-23 19:40:32 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Enska Íslenska
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 16.590 m.kr.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 4.420 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 4.420 m.kr. á 3,05%. Heildarstærð
flokksins verður 17.340 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 24 var stækkaður um 4.060 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,02%. Heildartilboð voru 4.100 m.kr. á bilinu 3,02% - 3,05%.
Heildarstærð flokksins verður 14.000 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í nýjan verðtryggðan flokk ISLA CBI 30 voru samtals 6.160 m.kr.
á ávöxtunarkröfunni 2,85%. Heildartilboð voru 8.070 m.kr. á bilinu 2,78% -
3,00%.
Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalán til
viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 7.120 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt  er að  töku skuldabréfanna  til viðskipta  í Nasdaq Iceland þann 30. maí
næstkomandi.

Það  sem af er  ári 2017 hefur Íslandsbanki  gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
28.320 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að
afloknu útboði verður að nafnverði 93.020 m.kr.

Til  stendur  að  nýta  stærstan  hluta  útgáfunnar  til  að endurfjármögnunar á
útistandandi  veðtryggðu skuldabréfi bankans,  upphaflega útgefnu til Eignasafns
Seðlabanka Íslands.

Útgáfuáætlun  bankans á  sértryggðum bréfum  fyrir árið  2017 verður í kjölfarið
tekin til endurskoðunar með uppfærslu í huga.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]