2008-07-30 17:09:08 CEST

2008-07-30 17:10:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Viðskipti félags með eigin bréf

Eimskip gerir samkomulag um skil á hlutabréfum


55 milljónir bréfa aftur í eigu Eimskips

Hf. Eimskipafélag Íslands hefur gert samkomulag við tvo af fyrrum eigendum
Innovate í Bretlandi, þá Stephen Savage og Stephen Dargavel. Samkomulagið er
gert í kjölfar skoðunar stjórnar Eimskips á kaupum á Innovate og hafa
fyrrnefndir aðilar samþykkt að skila 55.406.354 hlutum í Eimskip, sem gefnir
voru út vegna kaupa á hlutafé í Innovate í júní 2007. Verðmæti bréfanna í þeim
viðskiptum var um 2,5 milljarðar króna. Miðað við lokagengi hlutabréfa Eimskips
þann 29. júlí var markaðsvirði bréfanna um 792 milljónir króna. Eigin bréf
Eimskips eru nú 159.878.087 hlutir. 

Eimskip hefur átt í viðræðum við Peter Osborne og búist er við að þær haldi
áfram, en hann er eigandi að 27.703.177 bréfa í Eimskip, sem hann fékk afhent
við kaup Eimskips í Innovate í júní 2007. 

Upplýsingar veitir:

Halldór Kristmannsson
Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs
Sími: 525 7000 / 825 7221
Póstfang: halldor@eimskip.is