|
|||
2011-09-01 10:56:09 CEST 2011-09-01 10:57:09 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUppsögn á aðalmiðlarasamningi við Saga Fjárfestingarbanka.Hinn 29. apríl 2011 undirrituðu Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs samninga við fimm fjármálafyrirtæki, svokallaða aðalmiðlara, í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Nú hefur Saga Fjárfestingarbanki hf., sem var eitt fyrrgreindra fjármálafyrirtækja, tjáð Lánamálum ríkisins að það muni ekki geta staðið við veigamikinn hluta síns samnings. Lánamál ríkisins hafa því með vísan til 11. gr. samningsins ákveðið að segja honum upp án fyrirvara. Fellur því samningurinn við Saga Fjárfestingarbanka hf. úr gildi frá og með 1. september 2011. |
|||
|