|
|||
2012-11-23 15:00:00 CET 2012-11-23 15:00:04 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurTraustari greiðslugeta Orkuveitunnar11 milljarða króna rekstrarhagnaður fyrstu 9 mánuðina 2012 : Framvinda Plansins á áætlun Árangur í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur hefur styrkt verulega getu fyrirtækisins til að greiða af þeim miklum skuldum sem á rekstrinum hvíla. Samkvæmt 9 mánaða uppgjöri 2012 var framlegð rekstursins 17,8 milljarðar króna og rekstrarhagnaður EBIT 11 milljarðar króna á tímabilinu. Hlutfall milli framlegðar frá rekstrinum og skulda er nú orðið svipað og fyrir hrun. Aðgerðaáætlun Orkuveitu Reykjavíkur og eigenda - „Planið“ - var samþykkt vorið 2011 og felur í sér margvíslegar aðgerðir sem miða að því að bæta sjóðstöðu fyrirtækisins um 50 milljarða króna til ársloka 2016. Að loknum fyrstu níu mánuðum ársins 2012 er árangurinn um 1,2 milljörðum króna betri en gert er ráð fyrir í Planinu. Að auki hafa heildaráhrif ytri þátta - vaxta, álverðs og gengis - reynst hagstæðari en ráð var fyrir gert, sem nemur 564 milljónum króna. Allir þættir Plansins eru á áætlun nema hvað eignasala hefur gengið hægar en ráð var fyrir gert. Umbætur í rekstri Auk Plansins hefur verið gripið til margvíslegra aðgerða til að rétta reksturinn við. Má þar nefna að -- nýir stjórnendur hafa verið ráðnir að fyrirtækinu -- áherslum í rekstri hefur verið breytt og skipulagi hans samhliða viðamiklum aðhaldsaðgerðum -- endursamið hefur verið um gjalddaga lána við erlenda lánveitendur -- samið hefur verið við fjármálafyrirtæki hér á landi og erlendis um áhættuvarnir gagnvart sveiflum á álverði,vöxtum og gengi. Margt breytist við uppstokkun í rekstri Uppstokkunin í rekstri Orkuveitunnar undanfarin misseri hefur leitt í ljós ýmis tækifæri til sparnaðar og umbóta. Í viðhengdri kynningu forstjóra gefur að líta dæmi um það; t.d. fjölda starfsmanna og hlutfall kvenna meðal stjórnenda. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur: Það kemur sífellt betur í ljós að sá mikli sparnaður, sem náðst hefur í rekstrinum er varanlegur. Starfsfólk og stjórnendur halda mjög vel vöku sinni við reksturinn og með því hefur afkoman stöðugt farið batnandi síðustu misseri. Planið er að ganga eftir og það er nauðsynlegt því á árinu 2013 eru stórir gjalddagar lána, sem Orkuveitan virðist nú í stakk búin að ráða við. Rekstraryfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur eftir þriðja ársfjórðung 2008 2009 2010 2011 2012 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 16.816 17.960 19.444 24.388 27.286 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (8.634) (9.434) (9.557) (8.910) (9.449) -------------------------------------------------------------------------------- EBITDA 8.183 8.526 9.886 15.478 17.838 -------------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (4.990) (6.979) (5.936) (6.178) (6.862) -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 3.192 1.546 3.950 9.300 10.976 -------------------------------------------------------------------------------- Innleystar fjármunatekjur og (3.555) (4.433) (2.430) (2.222) (3.364) (fjármagnsgjöld) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir óinnleysta (362) (2.887) 1.520 7.079 7.612 fjármagnsliði -------------------------------------------------------------------------------- Óinnleystir fjármagnsliðir (47.105) (10.707) 20.849 (14.941) (4.217) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir tekjuskatt skv. (47.468) (13.593) 22.368 (7.862) 3.395 árshlutareikningi -------------------------------------------------------------------------------- Tekjuskattur 7.880 2.305 (5.575) 2.519 (814) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins (39.588) (11.288) 16.793 (5.343) 2.580 -------------------------------------------------------------------------------- Nánari upplýsingar: Bjarni Bjarnason forstjóri 516 7707 |
|||
|