|
|||
![]() |
|||
2009-12-30 10:22:00 CET 2010-03-02 10:28:10 CET REGULATED INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins FariceTekjur Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. á árinu 2009 hafa ekki verið í samræmi við áætlanir félagsins, m.a. vegna þess að uppbygging netþjónabúa og annars iðnaðar sem nýtir flutningsgetu ljósleiðara Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. til og frá Íslandi hefur dregist. Hefur þetta leitt af sér að félagið hefur ekki náð að halda öllum skuldum þess í skilum. Af þeim sökum hefur Eignarhaldsfélagið Farice ehf. að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu. Í þessu skyni hefur félagið m.a. gert samkomulag við kröfuhöfa sem fara með um 98,5% af heildarkröfum á það félag að frátöldum kröfum skuldabréfaeigenda EFAR 09 01, en sá skuldabréfaflokkur er í skilum og er næsti gjalddagi þann 15. apríl 2010. Í samkomulaginu við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. felst að kröfuhafar fallast á að félagið þurfi ekki að greiða gjaldfallnar afborganir út samningstímann sem rennur út þann 28. febrúar 2010. Verður tíminn fram að því nýttur til að útbúa og leggja fyrir aðila samkomulagsins tillögur um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Unnið er að gerð samskonar samkomulags við kröfuhafa dótturfélags Eignarhaldsfélagsins Farice ehf., Farice hf. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. á um 79,9% af heildarhlutafé í Farice hf. Skuldabréfaflokkurinn EFAR 09 01 er að nafnvirði ISK 5.000.000.000 og er með einfaldri ábyrgð ríkissjóðs í samræmi við lög nr. 121/1997, um ríkisábyrgðir, sbr. rgl. nr. 237/1998, um ríkisábyrgðir, Ríkisábyrgðasjóð og endurlán ríkisins. Heildarskuldir Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. á samstæðugrunni nema um € 113,8 milljónum, en þar af eru um € 49,2 milljónir í vanskilum. Af því nema heildarskuldir Farice hf. um € 25,8 milljónum, en þar af eru um € 2,8 milljónir í vanskilum. Að öðru leyti en fram kemur hér að framan hafa ekki orðið verulegar breytingar á framtíðarhorfum eða fjárhagsstöðu Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. frá 30. júní 2009. |
|||
|