|
|||
2009-10-26 16:39:07 CET 2009-10-26 16:40:08 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSala íbúðabréfa og ríkisbréfaÞriðjudaginn 27. október fer fram útboð á íbúðabréfum og ríkisbréfum sem lögð voru fram til tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Í boði eru eftirfarandi flokkar að nafnverði: Flokkar Nafnverð HFF150224 4,3 ma.kr. HFF150434 3,2 ma.kr. RIKB 13 0517 3,8 ma.kr. RIKB 19 0226 3,1 ma.kr. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabankans í gegnum Bloomberg-útboðskerfið milli kl. 09:30 og 10:00. Tilboð skulu sett fram í verðum, með þremur aukastöfum Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Niðurstaða verður birt kl. 11:00. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur. 29. október 2009. |
|||
|