|
|||
![]() |
|||
2011-10-07 13:45:51 CEST 2011-10-07 13:46:53 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 13 0517: Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.950 m.kr. að nafnverði. 4 tilboðum var tekið fyrir 1.600 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,265 (3,77% ávöxtunarkröfu). RIKB 16 1013: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.700 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 1.100 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,200 (4,81% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11. október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 12. október 2011. |
|||
|