2016-10-26 17:32:13 CEST

2016-10-26 17:32:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs september 2016


Aukin útlán milli ára

Útlán á fyrstu níu mánuðum ársins námu 8,9 milljörðum króna samanborið við 4,7
milljarða fyrir sama tímabil árið 2015. Íbúðalánasjóður hefur þegar lánað 3
milljörðum krónum meira en heildarútlán ársins 2015. Umfang útlána sjóðsins er
sambærilegt við tölur ársins 2013 en þá voru útlán fyrstu níu mánaða ársins 8,7
milljarðar króna. 

Íbúðum í eigu sjóðsins fækkar hratt

Íbúðir í eigu sjóðsins voru í lok september 733 talsins. Hefur þeim fækkað um
615 frá því í ársbyrjun þegar fjöldinn var 1348. Sala íbúða gengur vel og er
samkvæmt áætlun. Seldar hafa verið 782 eignir og  jafnframt hafa verið samþykkt
kauptilboð í 80 eignir til viðbótar. Ríflega þriðjungur eignanna sem var í eigu
sjóðsins í lok september eru í almennri sölumeðferð og helmingur eða 373 eignir
eru leigðar út. Með sölu eigna gefst tækifæri til að ávaxta fjármuni betur með
tilliti til fjárfestingarheimilda og styrkja með því hreinan vaxtamun sjóðsins. 

Frekari upplýsingar um stöðu lánasafns og markaðsupplýsingar tengdar útgáfum
sjóðsins má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu fyrir september.