2010-10-06 11:07:55 CEST

2010-10-06 11:08:53 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Föstudaginn 8. október kl. 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin til sölu bréf í tveggja ára óverðtryggða flokknum RIKB 12 0824. 
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 13. október 2010.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12.
október 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir
þessi viðskipti er 13. október 2010. 

SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 12 0824 með sölu á RIKB
10 1210, sem fellur á gjalddaga 10. desember nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 10
1210 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 101,45 (113,015068 með
áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 13. október 2010.
Til skýringar, jafngildir verðið 4,09% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt
áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem
vilja nota RIKB 10 1210 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna lánamálum
ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 12. október 2010. 

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 10 1210 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í
öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði
með því að hafa samband við næsta banka.