|
|||
![]() |
|||
2012-07-06 17:30:35 CEST 2012-07-06 17:31:35 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur júní 2012Fjöldi farþega í millilandaflugi 246 þúsund í júní Félagið flutti 246 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 15% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning var 15% á milli ára. Sætanýting nam 82,5% og jókst um 1,7 prósentustig á milli ára. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 24% og aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam um 17%. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 35 þúsund í júní sem er hækkun um 5% á milli ára. Sætanýting nam 71,1% og jókst um 0,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% m.v. júní á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 20% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 13% frá júní á síðasta ári. Herbergjanýting var 75,3% og var 2,7 prósentustigum hærri en í júní 2011. MILLILANDAFLUG JÚN 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 245.882 15% 852.873 18% Sætanýting 82,5% 1,7 ppt 79,7% 3,4 ppt Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 859.201 15% 3.009.091 14% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JÚN 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 34.894 5% 172.432 4% Sætanýting 71,1% 0,4 ppt 70,3% 1,8 ppt Framboðnir sætiskm. ('000) 18.060 1% 80.895 0% LEIGUFLUG JÚN 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 100,0% 12,1 ppt 90,7% -4,0 ppt Seldir blokktímar 2.755 -7% 15.920 -10% FRAKTFLUTNINGAR JÚN 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 18.117 3% 83.862 10% Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.128 20% 45.246 23% HÓTEL JÚN 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 34.849 13% 129.870 17% Seldar gistinætur 26.243 17% 87.953 27% Herbergjanýting 75,3% 2,7 ppt 67,7% 5,2 ppt Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|