2010-06-22 11:44:12 CEST

2010-06-22 11:45:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagslegar upplýsingar vegna skuldabréfaútboðs.


Birting fjárhagslegra upplýsinga vegna fyrirhugaðs skuldabréfaútboðs.

RARIK hefur ákveðið að efna til skuldabréfaútboðs á nýjum flokki skuldabréfa,
RARIK 10 1. 
Fjárfestum mun bjóðast að kaupa allt að 3.000 milljónir króna að nafnvirði.
Landsbankinn (NBI hf.) er umsjónaraðili útboðsins og hefur sölutryggt útboðið.
Í kynningarefni útboðsins sem kynnt verður fjárfestum koma fram áður óbirtar
fjárhagslegar upplýsingar og til að gæta jafnræðis á meðal fjárfesta á markaði
fylgir kynningarefnið þessari tilkynningu. 

Fjárfestum er sérstaklega bent á að kynna sér  Rekstrar- og fjárfestingaráætlun
ársins 2010 og áætlaða endurfjármögnunarþörf. 

Jafnframt kemur fram í kynningarefni útboðsins að samkvæmt óendurskoðuðu
rekstraruppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins er 
rekstur RARIK samstæðunnar í góðu samræmi við áætlanir félagsins fyrir árið
2010. 


Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Hilmar Sverrisson, 
Framkvæmdastjóri  fjármálsviðs RARIK 
Sími: 528-9000
Tölvupóstur: olafur.sverrisson@rarik.is