2010-06-11 16:21:28 CEST

2010-06-11 16:22:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf


Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum Nasdaq OMX á Íslandi að gerast
aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með
íbúðabréf. 
Stefnt er að því að aðilar að Nasdaq OMX, sem reiðubúnir eru að gangast undir
þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa
þurfi að undirrita samninginn milli kl. 12:00 og 13:00, miðvikudaginn 16. júní
2010 í Íbúðalánasjóði. Verður sá tími staðfestur með nýrri tilkynningu
mánudaginn 14. júní n.k. 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi í tengslum við viðskiptavakt á
eftirmarkaði.