|
|||
![]() |
|||
2015-12-01 17:57:57 CET 2015-12-01 17:57:57 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn gefur út skuldabréf í norskum og sænskum krónumLandsbankinn hefur í dag lokið við sína fyrstu skuldabréfaútgáfu í Skandinavíu. Í kjölfar fjárfestafunda sem haldnir voru í nóvember ákvað Landsbankinn að mæta eftirspurn skandínavískra fjárfesta með útgáfu sem nemur 250 milljónum norskra króna og 250 milljónum sænskra króna. Skuldabréfin sem gefin eru út undir EMTN ramma Landsbankans eru til 3½ árs og bera 2,6% álag ofan á millibanka vexti í norskum krónum annars vegar og 2,6% álag ofan á millibanka vexti í sænskum krónum hins vegar. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum sem seld voru til 30 fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og á meginlandi Evrópu. „Landsbankinn er ánægður með þann mikla áhuga sem fjárfestar í Skandinavíu sýna. Með þessari útgáfu í norskum og sænskum krónum er Landsbankinn að fylgja eftir vel heppnaðri útgáfu undir EMTN rammanum frá því í október. Útgáfan nú er á hagstæðari kjörum en þá og styrkir enn frekar fjármögn bankans í erlendum myntum,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans. Umsónaraðili útgáfunnar var Pareto Securities AB í Stokkhólmi Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7328 |
|||
|