|
|||
![]() |
|||
2017-04-03 18:04:57 CEST 2017-04-03 18:04:57 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170911 og nýjum flokkum, LBANK 171010 og LBANK 180410. Heildartilboð í útboðinu voru 25 talsins og námu samtals 3.680 m. kr. Sex tilboð að fjárhæð 600 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170911 og voru vextir tilboða á bilinu 5,09%-5,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Ellefu tilboð að fjárhæð 1.460 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171010 og voru vextir tilboða á bilinu 5,10%-5,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 960 m. kr. á 5,20% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,4247. Átta tilboð að fjárhæð 1.620 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru vextir tilboða á bilinu 5,34%-5,55%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.100 m. kr. á 5,44% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 94,7728. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. apríl 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|