2008-03-05 10:48:12 CET

2008-03-05 10:49:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Bakkavör Group hf. - Boðun hluthafafundar

- Aðalfundur Bakkavör Group hf. verður haldinn föstudaginn 14. mars 2008 kl. 16:30


Aðalfundur Bakkavör Group hf. verður haldinn föstudaginn 14. mars nk. kl. 16:30
í Þjóðleikhúsinu, Hverfisgötu 19, 101 Reykjavík. 

Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:

1.  Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.

2.  Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun endurskoðanda, lagður fram
    til samþykktar.
3.  Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar síðastliðins reikningsárs.

4.  Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

5.  Tillögur til breytinga á samþykktum:
       a. Breyting á 3. gr. - Lagt er til að stjórn verði veitt heimild til
          útgáfu hlutafjár félagsins í erlendum gjaldmiðli. 
       b. Breyting á 19. gr. - Lagt er til að stjórnarmönnum verði fjölgað úr 7
          í 8. 

6.  Kosning stjórnar félagsins.

7.  Kosning endurskoðunarfélags.

8.  Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.

9.  Heimild til kaupa á eigin hlutum. - Lagt er til að stjórn félagsins verði
    veitt heimild til kaupa allt að 10% á eigin hlutum félagsins á næstu 18
    mánuðum. 

10. Önnur mál.

Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti
fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig
hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu skal geta auk nafns frambjóðanda,
kennitölu og heimilisfangs, upplýsinga um aðalstarf, önnur stjórnarstörf,
menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Auk þess skal geta upplýsinga um
hagsmunatengsl við helstu viðskipta- og samkeppnisaðila félagsins sem og
hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Stjórn félagsins skal fara yfir
framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi tækifæri, með sannanlegum hætti til
þess að bæta úr göllum sem eru á tilkynningunni innan tiltekins frests sem eigi
má vera lengri en 24 klukkustundir. Ef ekki er bætt úr ágöllum á
framboðstilkynningu innan tiltekins frests, úrskurðar stjórn félagsins um gildi
framboðs. Unnt er að skjóta ákvörðun stjórnar félagsins til hluthafafundar sem
fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs. 

Upplýsingar um framboð til stjórnar félagsins skulu vera aðgengilegar hluthöfum
á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. 

Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. 

Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur
verður hægt að nálgast umrædd gögn á vefsíðu félagsins, www.bakkavor.com, frá
sama tíma. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 15:30
á fundarstað. 

Fundarstörf fara fram á ensku.


Reykjavík 05. mars 2008
Stjórn Bakkavör Group hf.