2014-03-04 10:05:03 CET

2014-03-04 10:06:08 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandssjóðir hf. - Ársreikningur

Íslandssjóðir hf. – Ársuppgjör 2013


Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og
fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2013. 

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2013

  -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikninga
     verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á
     reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2013 nam 299 m.kr. samanborið
     við 258 m.kr. árið 2012.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 1.350 m.kr. samanborið við 1.208 m.kr. árið
     áður.
  -- Rekstrargjöld námu 976 m.kr. samanborið við 886 m.kr. árið áður.
  -- Heildareignir félagsins námu 2.595 m.kr. í árslok 2013 en voru 3.006 m.kr.
     í ársbyrjun.
  -- Eigið fé í árslok 2013 nam 2.031 m.kr. en var 1.925 m.kr. í ársbyrjun.
  -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
     fjármálafyrirtæki, var 211,3% í árslok 2013 en þetta hlutfall má ekki vera
     lægra en 8,0%.
  -- Í lok desember 2013 voru 16 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam
     hrein eign þeirra 117.725 milljónum króna. Hagnaður færður á
     hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða
     var 6.551 m.kr. árið 2013 samanborið við hagnað uppá 7.643 m.kr. árið 2012.
  -- Skipulagsbreytingar urðu hjá félaginu á árinu þegar stofnað var svið
     sérhæfðra fjárfestinga og þrír starfsmenn ráðnir til að sinna uppbygginga í
     þeim eignaflokki. Félagið tók yfir þjónustu við Fast-1 sem er sérhæft
     fjárfestingarfélag í fasteignum. Einnig var stofnaður fagfjárfestasjóðurinn
     Akur sem fjárfestir í óskráðum hlutabréfum.
  -- Félagið sameinaði nokkra verðbréfasjóði á árinu. Lengri
     skuldabréfasjóðurinn var sameinaður Ríkisskuldabréfum - Sjóði 5 í september
     og Alþjóða virðissjóðurinn og Alþjóða vaxtarsjóðurinn voru sameinaðir
     Heimssafni - Sjóði 12 í desember. Einnig var sjóði sem skráður var í
     Lúxemborg slitið í nóvember.
  -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að
     reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu
     2013.
  -- Í lok desember 2013 störfuðu 18 starfsmenn hjá Íslandssjóðum.
     Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.

Lykiltölur í m.kr.Sjá vi'ðhengi.



Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum hf. Kirkjusandi 2
og hjá VÍB, Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, einnig á heimasíðu félagsins:
www.islandssjodir.is frá og með 17. mars næstkomandi. 



Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn
Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, í síma 440 4593.