|
|||
2013-09-24 22:34:41 CEST 2013-09-24 22:35:42 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumTilkynning um skipan nýrrar stjórnar ÍbúðalánasjóðsEygló Harðadóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs. Formaður stjórnarinnar er Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lögmaður og tekur hún við af Jóhanni Ársælssyni. Samkvæmt breytingum á lögum um húsnæðismál frá júlí 2012 er nú gerð krafa um að forstjóri og stjórn sjóðsins standist kröfur Fjármálaeftirlitsins um hæfi. Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum: Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður, formaður stjórnar Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður, varaformaður Haukur Ingibergsson, f.v. forstjóri Þjóðskrár Íslands, aðalmaður Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri, aðalmaður Stefán Ólafsson, prófessor félagsvísindadeild HÍ, aðalmaður Til vara: Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur Jóhann Birgisson, bankamaður Halldóra Hauksdóttir, lögfræðingur Margrét Rósa Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari G. Valdimar Valdimarsson, kerfisfræðingur Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður Land Lögmenn Ingibjörg útskrifaðist með meistaragráðu (LL.M) í alþjóða- og samanburðarlögfræði frá George Washington University Law School árið 2003. Ingibjörg tók lögmannsréttindi hjá Lögmannafélagi Íslands árið 2000. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 1998. Ingibjörg er sjálfstætt starfandi lögmaður og einn af stofnendum og eigendum lögmannsstofunnar Land lögmenn. Sérsvið Ingibjargar eru m.a. alþjóða- fjárfestingar og viðskiptasamningar, fríverslunarsamningar, aðstoð við sprotafyrirtæki, stjórnsýsluréttur og landbúnaðarlögfræði. Hún hafði yfirumsjón með lögfræðiráðgjöf hjá fjárfestingafélaginu IVC S.A. í Sviss og starfaði hjá fríverslunarsamningadeild EFTA í Genf. Ingibjörg starfaði áður sem deildarstjóri hjá Landbúnaðarráðuneytinu og var fulltrúi hjá sýslumanninum á Seyðisfirði. Hún var auk þess sem stundakennari við Háskólann á Bifröst. Ingibjörg hefur setið í og stýrt fjölmörgum nefndum á vegum Stjórnarráðsins frá árinu 1999. Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður ETNA Lögmannsstofu Lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1990 og er stofnandi ETNA lögfræðiþjónusta með starfsemi í Reykjavík og Brussel með áherslu á alþjóðaviðskipti, milliríkjasamskipti, ESB rétt og ráðgjöf í opinberri stjórnsýslu. Hrund hefur starfað í alþjóðastofnunum í Brussel í 10 ár, var um tíma í utanríkisráðuneytinu og er héraðsdómslögmaður. Hún hefur setið í fjölda stjórna og nefnda, m.a. í stjórn Símans hf, í samkeppnisráði og í kjörstjórn vegna kirkjuþingskosninga. Haukur Ingibergsson, f.v. forstjóri Þjóðskrár Íslands Er með cand.mag. próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1973 og B.A. í sagnfræði og landafræði frá Háskóla Íslands 1970. Frá árinu 1986 hefur Haukur gegnt ýmsum stjórnunarstörfum í stjórnsýslunni m.a. framkvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits ríkisins, forstöðumaður Hagsýslu ríkisins, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og forstjóri Þjóðskrár Íslands. Haukur hefur setið í fjölmörgum nefndum innan sem utan stjórnsýslunnar og stjórnum fyrirtækja m.a. í stjórn Bifreiðaskoðunar Íslands hf., Stofnfisks hf., Íslenska Járnbendifélagsins og háskólaráði Kennaraháskóla Íslands. Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði Háskólanum á Akureyri Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði Háskólinn á Akureyri Kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998. Framhaldsnám í heimspeki við University College í Cork á Írlandi. Skipuð lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri frá 2012. Aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra 2010-2012, lögfræðilegur ráðgjafi félagsmálaráðherra 2009-2010, aðstoðarmaður utanríkisráðherra 2007-2009 áður lögfræðingur hjá Lex lögmannsstofu 2006-2007, hjá Samtökum iðnaðarins 2001-2006, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar 1999-2001, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis 1998-1999. Kennari við lagadeildir háskólanna á Íslandi meðfram öðrum störfum. Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild HÍ Stefán er með doktorspróf í félags- og hagfræði frá Oxford (1982), og M.A. í félagsfræði frá University of Edinburgh (1976). Stefán hefur starfað við Háskóla Íslands allt frá árinu 1980 og gegnt þar kennslu og stjórnunarstörfum. Stefán hefur skrifað fjölda bóka sem gefnar hafa verið út og fjölda rannsóknar- og fræðigreinar sem birst hafa bæði heima og erlendis. Stefán var formaður stjórnar Íslenska Járnblendifélagsins 1992-2004, í stjórn Spalar hf. frá 1999 til 2004, formaður stjórnar Háskólabíós frá árinu 2000 og er nú formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins (frá 2007). Nánari upplýsingar veitir núverandi stjórnarformaður stjórnar Íbúðalánasjóðs Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, netfang iov@landlogmenn.is. |
|||
|