|
|||
2008-04-22 13:34:01 CEST 2008-04-22 13:35:02 CEST REGULATED INFORMATION Ísafjarðarbær - Ársreikningur- 2007Ársreikningar Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2007 var staðfestur af bæjarstjórn 17. apríl 2007 við fyrri umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður síðari umræða 8. maí nk. Nýjar reglur um reikningsskil sveitarfélaga tóku gildi í ársbyrjun 2002 og er ársreikningurinn í samræmi við þær. Í reglunum felst að reikningsskil sveitarfélaga eru færð til samræmis við almenn reikningsskil fyrirtækja. Rekstrareiningar sveitarfélagsins skiptast í A-hluta (sveitarsjóður) og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sveitarsjóðs sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum eða aðalsjóður, eignasjóður og þjónustustöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki/stofnanir sem fjármagnaðar eru með þjónustutekjum en þau eru: hafnarsjóður, vatnsveita, dvalar- og hjúkrunarheimili, fráveita, Funi sorpbrennslustöð og Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf. Sjá meðfylgjandi fréttatilkynningu ásamt ársreikningi. Ársreikningurinn er birtur á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is undir slóðinni fjármálasvið/ársreikningur 2007. Nánari upplýsingar veitir Védís Jóhanna Geirsdóttir, aðalbókari vedis@isafjordur.is í síma 450 8000. |
|||
|