2015-03-05 16:31:00 CET

2015-03-05 16:31:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Hluthafafundir

Fjarskipti hf. : Endanleg dagskrá og tillögur aðalfundar


Aðalfundur Fjarskipta hf. (Vodafone) verður haldinn fimmtudaginn 19. mars nk.
á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst kl 16:00.

Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar eru í hjálögðum skjölum. Vakin er athygli
á að arðsréttindadagurinn (e. record date) verður 23. mars 2015 skv. endanlegum
tillögum, í stað 24. mars 2015 skv. upphaflegum tillögum.

Bent er á að framboðum til stjórnar félagsins ber að skila fimm dögum fyrir
aðalfund, sbr. 63. gr. a. laga nr. 2/1995 á netfangið stjorn2015@vodafone.is.
Ennfremur gefst hluthöfum nú í fyrsta sinn tækifæri til að kjósa tvo af þremur
fulltrúum í tilnefningarnefnd, sem er undirnefnd stjórnar. Framboðsfrestur til
tilnefningarnefndar er hinn sami og til stjórnar, en framboðum til
tilnefningarnefndar ber að skila á netfangið tilnefningarnefnd2015@vodafone.is

Fundargögn aðalfundar eru aðgengileg á vef félagsins
- http://www.vodafone.is/fjarfestatengsl


[HUG#1899804]