2013-10-31 11:52:53 CET

2013-10-31 11:53:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Lánshæfismat Kópavogsbæjar er áfram B+ með stöðugum horfum


Meðfylgjandi er nýtt lánshæfismat Kópavogsbæjar sem lánsmatsfyrirtækið Reitun
ehf hefur unnið. 



Lánshæfismat Kópavogsbæjar er B+ með stöðugum horfum, að mati íslenska
lánshæfismatsfyrirtækisins Reitunar ehf. og er því óbreytt frá því í júní þegar
einkunnin var hækkuð úr B í B+. „Vel hefur gengið að  greiða niður skuldir og
hafa áætlanir staðist,“ segir í þessu nýja mati Reitunar. Það hefur verið sent
Kauphöll Íslands. 



Í niðurstöðum Reitunar er tekið fram að gengisáhætta Kópavogsbæjar sé nú
hverfandi. Aðeins um 1,5% skulda eru nú í erlendum myntum. „Stjórnendur hafa
sýnt fram á áframhaldandi getu og vilja til að fylgja eftir markmiðum sem sett
voru á árinu 2010. Horfur í efnahagsmálum eru sveitarfélaginu hagfelldar.
Lóðaúthlun gengur vel en það sem af er ári er bókfært úthlutunarverðmæti lóða
um 800 - 900 milljónir króna,“ segir í niðurstöðum Reitunar. 



Bent er á að í tillögu að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árin 2015 til 2017, sem
nú er til meðferðar í bæjarstjórn, sé ráðgert að rekstrarniðurstaða verði
jákvæð á tímabilinu. Á næsta ári er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur verði
642 milljónir króna og að hann eigi síðan eftir að aukast árin þar á eftir.
Miðað er við að hann verði rúmar 1.572 milljónir króna árið 2017. 



Einnig segir í rökstuðningi Reitunar að þróun á fasteignamarkaði virðist vera
öðruvísi í Kópavogi en víða annars staðar. Fasteignaverð hafi hækkað meira í
bænum en í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og að vel hafi gengið að
úthluta lóðum. „Aukin íbúðafjárfesting er mikilvæg fyrir Kópavogsbæ þar sem
bærinn á enn mikinn fjölda lóða til úthlutunar. Gangi lóðasala eftir vænkast
staða bæjarins og hefði það jákvæð áhrif á lánshæfi.“ 



Kópavogsbær gerði samning við fyrirtækið Reitun fyrir þremur árum um greiningu
og mat á lánshæfi sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum á skuldabréfamarkaði.
Kópavogur var fyrsta sveitarfélagið til að gera slíkan samning. Reitun er
dótturfélag IFS greiningar og var stofnað árið 2010.