2016-03-02 17:14:25 CET

2016-03-02 17:14:25 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Orkuveita Reykjavíkur - Ársreikningur

Skuldir OR lækkað um 76 milljarða á sex árum


Reykjavík, 2016-03-02 17:13 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Ársreikningur samstæðu
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) staðfestir viðsnúning í rekstri OR og
dótturfélaganna á síðustu árum. Með traustri og stöðugri afkomu rekstursins
hafa nettó vaxtaberandi skuldir lækkað um 76 milljarða króna frá árslokum 2009.
Á sama tímabili hefur eiginfjárhlutfall OR samstæðunnar hækkað úr 14% í 37%. 

Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Auk
móðurfélagsins eru helstu fyrirtækin í samstæðu OR þessi; Veitur, Orka
náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. 

Fjárfestingar tvöfölduðust

Rekstrargjöld fyrirtækjanna innan samstæðu OR hafa verið í jafnvægi síðustu ár
og sparnaður í rekstrinum er varanlegur. Þá hafa áhættuvarnir vegna breytinga á
álverði dregið úr sveiflum í tekjum. Fjárfestingar fyrirtækjanna tvöfölduðust
milli áranna 2014 og 2015 og námu 10,2 milljörðum króna á síðasta ári.
Hverahlíðarlögnin að Hellisheiðarvirkjun og viðhaldsboranir á Hengilssvæðinu
voru helstu fjárfestingar við virkjanir ON, fráveituframkvæmdir á Vesturlandi
og endurnýjun í veitukerfum þar og á höfuðborgarsvæðinu voru umfangsmestu
fjárfestingar Veitna. Gagnaveita Reykjavíkur lauk tengingu heimila í þéttbýli
Reykjavíkur við Ljósleiðarann. 

Skuldir lækkað mikið

Á árinu 2015 lækkuðu nettó vaxtaberandi skuldir OR um 14 milljarða króna. Í
árslok 2015 námu þær 158 milljörðum króna og eins og súluritið sýnir hafa þær
lækkað um 76 milljarða króna frá árslokum 2009. 

Planið

Aðgerðum vegna Plansins má skipta í ytri og innri þætti. Ytri aðgerðir, lán frá
eigendum og leiðrétting gjaldskrár, höfðu þá skilað 21,1 milljarði eða 38%.
Aðgerðir innan fyrirtækisins höfðu í árslok 2015 skilað 33,9 milljörðum króna
eða um 62% af heildarárangrinum. 

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR:

Viðsnúningurinn í fjármálum OR og dótturfyrirtækjanna hefur gengið vonum
framar. Sú menningarbreyting sem orðin er í OR skilaði fljótt bættri afkomu.
Okkur sýnist að batinn sé varanlegur. 

Það kann að koma á óvart að einungis sjötta hver króna af heildarárangri
Plansins hafi verið sótt í hækkun gjaldskrár. Fyrir fimm árum, þegar Planinu
var hleypt af stokkunum, heyrðist sú skoðun að bjarga ætti OR með því einu að
fara í vasa viðskiptavina. Sú var og er ekki raunin heldur hefur á nokkrum árum
tekist að reisa við fjárhaginn á nýjum grunni. Þar eiga margir hlut að máli;
eigendur fyrirtækisins, stjórn þess, stjórnendur og ekki síst starfsfólk allt.
Það á þakkir skildar. 

Rekstraryfirlit stjórnenda

Rekstur samstæðu OR                   2011      2012     2013     2014      2015
Allar fjárhæðir eru í mkr. á                                                    
 verðlagi hvers árs                                                             
                                                                                
Rekstrartekjur                      33.626    37.905   39.209   38.526    40.357
Orkukaup og -flutningur            (5.016)   (4.866)  (5.402)  (5.335)   (6.400)
Laun og annar rekstrarkostnaður    (7.375)   (7.995)  (7.724)  (8.346)   (8.782)
EBITDA                              21.235    25.044   26.084   24.845    25.174
Afskriftir                         (8.881)  (10.371)  (8.927)  (9.152)  (10.747)
Rekstrarhagnaður EBIT               12.354    14.673   17.157   15.693    14.428
                                                                                
Afkoma tímabilsins                   (556)   (2.295)    3.350    8.871     4.176
                                                                                
Sjóðstreymi:                                                                    
Innleystar vaxtatekjur                 127       147      209      742       677
Greidd vaxtagjöld                  (5.690)   (7.093)  (6.308)  (4.293)   (3.948)
Handbært fé frá rekstri             16.930    18.935   20.033   22.084    21.815
Veltufé frá rekstri                 17.231    19.880   19.675   18.881    22.563
                                                                                




         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri OR
         516 7707