2017-02-09 17:27:46 CET

2017-02-09 17:27:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Landsbankinn hf. : Hættir í bankaráði Landsbankans hf.


Á fundi bankaráðs Landsbankans hf. í dag, 9. febrúar 2017, tilkynnti Danielle P.
Neben að hún segði af sér sem bankaráðsmaður. Ástæðan er sú að Danielle er að
hefja störf á nýjum vettvangi en hún hefur undanfarin ár starfað sem sjálfstæður
ráðgjafi.

Danielle var fyrst kjörin í bankaráð Landsbankans hf. í apríl 2013. Helga Björk
Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, segir: "Fyrir hönd Landsbankans þakka ég
Danielle fyrir öflugt starf í þágu bankans á undanförnum árum. Ég þakka um leið
fyrir ánægjulegt samstarf og óska henni alls hins besta í því sem hún tekur sér
fyrir hendur í framtíðinni."

Nánari upplýsingar veita:

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 /
899 3745

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310


[]