2016-11-09 14:56:01 CET

2016-11-09 14:56:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 11. nóvember


Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum föstudaginn 11.
nóvember 2016. Boðnir verða út óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 23 og verðtryggðu
flokkarnir ISLA CBI 22 og ISLA CBI 26. Stefnt verður að skráningu þeirra í
Kauphöll 18. nóvember.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendum verðtryggða
flokksins ISLA CBI 16 gefst kostur á að selja skuldabréf í flokknum gegn kaupum
á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki ISLA CBI 16 er
fyrirfram ákveðið á pari sem jafngildir verðinu 100 og ávöxtunarkröfunni 3,50%
(að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum er verðið 115,7996515).

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast
frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]