2013-09-04 12:05:00 CEST

2013-09-04 12:06:01 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
RARIK ohf. - Ársreikningur

Leiðrétting: Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2013 - frétt birt 2013-08-29 12:07:50


Heildarhagnaður RARIK á fyrri hluta ársins var 960 milljónir króna.

Leiðrétt: Í árshlutauppgjöri á bls 6 vantaði tvær línur,
tekjuskattsskuldbindingu og tekjuskatt til greiðlu. 

Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta
ársins 2013 var 1.207 milljónir króna. Rekstrarafkoman var heldur lakari en á
fyrri hluta ársins 2012 og hækkuðu  rekstrartekjur um 3,9% frá fyrra ári, en
rekstrargjöld með afskriftum um 9,1%. Afskriftir hækkuðu í kjölfar endurmats
eigna sem skýrir að verulegum hluta til hækkun rekstrargjalda. Regluleg
starfsemi  fyrirtækisins var að öðru leyti í samræmi við áætlanir. 

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 425 milljón króna á tímabilinu en voru á sama
tímabili árið áður neikvæðir um 699 milljónir króna. Þessi breyting stafar m.a.
af styrkingu krónunnar, en verðbólga var þó hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Boðinn var út skuldabréfaflokkur að upphæð 1.000 milljónir á fyrri hluta ársins
og gekk salan mjög vel, ávöxtunarkrafa sem fékkst í útboðinu var 3,09 %. Ekki
er gert ráð fyrir frekari fjármögnun á árinu. 

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru jákvæð um 335 milljónir
króna. 

Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 961 milljónir
króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var
2.006 milljónir króna eða um 35% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.995
milljónir eða 36%  af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá
rekstri var 1.927 milljónir króna samanborið við 1.975 milljón króna á sama
tímabili árið 2012. 

Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2013 voru heildareignir RARIK 45.846
milljónir króna og heildarskuldir námu 19.688 milljónum króna. Eigið fé var
26.158 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 57,1%. 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2013 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma
ársins fyrir fjármagnsliði verði í samræmi við áætlanir, en heildarafkoma
ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu
ástandi efnahagsmála. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár
næstu mánaða má búast við að heildarafkoma fyrirtækisins verði jákvæð á árinu. 

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum. 

Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2013 var samþykktur á fundi
stjórnar þann 29. ágúst 2013.