|
|||
![]() |
|||
2017-08-03 17:41:47 CEST 2017-08-03 17:41:47 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokkum, LBANK 180110 og LBANK 180212 og nýjum flokki, LBANK 180810. Heildartilboð í útboðinu voru 31 talsins og námu samtals 4.460 m. kr. Átta tilboð að fjárhæð 1.120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180110 og voru vextir tilboða á bilinu 4,58%-4,80%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Sextán tilboð að fjárhæð 2.140 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180212 og voru vextir tilboða á bilinu 4,58%-4,80%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.760 m. kr. á 4,62% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,6686. Sjö tilboð að fjárhæð 1.200 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180810 og voru vextir tilboða á bilinu 4,78%-5,05%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. ágúst 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|