2018-01-03 18:37:43 CET

2018-01-03 18:38:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs


Landsbankinn  hf. lauk  í dag  lokuðu útboði  á þremur nýjum víxlaflokkum; LBANK
180611, LBANK 180710 og LBANK 190110.

Heildartilboð í útboðinu voru 33 talsins og námu samtals 4.690 m. kr.

Tólf  tilboð  að  fjárhæð  1.580 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 180611 og voru
vextir  tilboða á bilinu 4,19%-4,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 960 m. kr. á
4,32% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,2087.

Sautján  tilboð að fjárhæð  2.680 m. kr. bárust  í flokkinn LBANK 180710 og voru
vextir  tilboða á bilinu 4,24%-4,36%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 640 m. kr. á
4,32% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8742.

Fjögur  tilboð  að  fjárhæð  430 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 190110 og voru
vextir tilboða á bilinu 4,37%-4,58%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. janúar 2018.

Nánari  upplýsingar  um  víxlana  má  finna  á  vefsvæði  fjármögnunar  bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.


[]