|
|||
2007-11-26 09:06:14 CET 2007-11-26 09:06:14 CET REGULATED INFORMATION Exista hf. - FyrirtækjafréttirÞátttaka Exista í forgangsréttarútboði Kaupþings bankaFjármálaþjónustufyrirtækið Exista tilkynnir í dag að félagið hefur ákveðið að nýta rétt sinn í væntanlegu forgangsréttarútboði Kaupþings banka. Útboðið er hluti af fjármögnun Kaupþings á kaupum á hollenska bankanum NIBC. Exista er stærsti hluthafi Kauþings og hefur félagið skuldbundið sig til skráningar á öllum hlut sínum í forgangsréttarútboðinu (u.þ.b. 13 milljónum hluta). Stefnt er að því að útboðið fari fram fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2008. Allt að 210 milljónir nýrra hluta í Kaupþingi banka verða gefnir út í tengslum við kaupin á NIBC og þar af verða 70 milljónir hluta boðnir hluthöfum í forgangsréttarútboði. Exista hefur jafnframt gert samkomulag um að sölutryggja allt að 50% forgangsréttarúboðsins, eða sem nemur 35 milljónum hluta (þar með talda þá 13 milljónir hluta sem félagið hefur skráð sig fyrir). Útgáfa nýrra hluta mun þynna eignarhlut Exista í Kaupþingi, sem nú er yfir 23%, niður í u.þ.b. 20-22% eftir forgangsréttarútboðið. Hópur fjárfesta undir forystu J.C. Flower & Co hafa gert samkomulag um að sölutryggja hinn helming forgangsréttarútboðsins. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista: „Exista hefur notið gífurlegs ávinnings af því að styðja við og taka þátt í vexti Kaupþings þau undanfarin sex ár sem félagið hefur verið stærsti hluthafi bankans. Við teljum að kaupin á NIBC muni efla stöðu Kaupþings enn frekar sem leiðandi banka fyrir meðalstór fyrirtæki og efnaða einstaklinga í Norður Evrópu. Því erum við ákveðin í að nýta réttindi okkar í útboðinu og fögnum því að fá tækifæri til að taka þátt í að sölutryggja forgangsréttarútboðið.“ Frekari upplýsingar veitir: Exista hf. Sigurður Nordal framkvæmdastjóri samskiptasviðs ir@exista.com 550 8620 / 860 8620 Um Exista Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu, meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group, Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Skiptum. Upplýsingar um Exista hf. er að finna á vefsíðu félagsins www.exista.is. |
|||
|